Vilja taka við Hatarabúningum

Stjórn BDSM á Íslandi hvetur landsmenn sem festu kaup á fatnaði, keðjum, ólum og slíku vegna Eurrovision og hljómsveitarinnar Hatara sem keppti fyrir hönd Íslendinga að koma slíkum búnaði til félagsins ef hann er líklegur til að safna ryki.

„Núna þegar Eurovision-æðið er að renna af landsmönnum viljum við benda á að við munum með glöðu geði taka við fatnaði, keðjum, göddum, ólum og slíku sem kann að hafa safnast fyrir í skápum svo fátækt BDSM-fólk fari nú ekki í ólaköttinn,“ segir á facebooksíðu BDSM á Íslandi.

„Að sjálfsögðu hvetjum við fólk til að nota slíkan búnað áfram, á öruggan hátt, en við hvetjum til endurnýtingar ef séð verður fram á að þetta muni safna ryki. Einnig hefur Rauði krossinn gefið út að hægt sé að skila „Hatarabúningum“ til þeirra. Endurnýtum!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert