Sendir Miðflokksmönnum baráttukveðjur

Ragnar Þór skorar á ríkisstjórnina að fresta málinu fram á …
Ragnar Þór skorar á ríkisstjórnina að fresta málinu fram á haust. mbl.is/Eggert

Ég sendi baráttukveðjur til þeirra þingmanna sem standa vaktina fyrir mig og börnin mín, dag og nótt, við algjörlega óviðunandi og ómannúðlegar aðstæður, á vinnutíma sem varla getur talist boðlegur í nútímasamfélagi, í því að koma í veg fyrir að 3. orkupakkinn verði samþykktur.“

Þetta skrifar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í færslu á Facebook. Þar vill hann koma á framfæri þakklæti til Miðflokksmanna, sem haldið hafa uppi málþófi á Alþingi í umræðum um þriðja orkupakkann, fyrir staðfestu þeirra í málinu „sem varðar svo mikla hagsmuni fyrir þjóðina og afkomendur okkar“.

Þá skorar Ragnar Þór á stjórnvöld að fresta málinu og biður um að þjóðin fái andrými til að kynna sér málið betur.

Við kjósendur hljótum að geta gert þá kröfu þegar svo stór og umdeild mál, er snúa að auðlindum þjóðarinnar og grunnstoðum samfélagsins, eru til umfjöllunar og hafa ekki fengið efnislega umræðu í aðdraganda kosninga. Okkur getur varla legið svo mikið á að ekki megi slá þessu á frest til haustsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert