Svipað veður og undanfarið

mbl.is/​Hari

Í dag er útlit fyrir hæga norðlæga eða breytilega átt. Svipað veður og hefur verið. Skýjað og súld fyrir austan, bjart að mestu á Norður- og Vesturlandi og skúrir sunnan til. Mögulega verða einhverjar hellidembur í uppsveitum sunnanlands og á hálendinu í dag.

Á morgun gengur á með skúrum sunnan til, þó líklega ekki jafn miklum og í dag. Annars verður svo gott sem þurrt á mestöllu landinu og sólin lætur kannski sjá sig áfram á einhverjum stöðum. Hiti svipaður og síðustu daga, hlýjast vestan til, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Norðlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s. Skýjað og lítilsháttar súld með austurströndinni, skúrir sunnanlands en bjart að mestu og úrkomulítið á Norður- og Vesturlandi. Svipað veður á morgun. Hiti 4 til 14 stig, hlýjast á vestanverðu landinu.

Á laugardag og sunnudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Skýjað um sunnan- og austanvert landið, með stöku skúrum sunnan til, en annars bjart veður. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á Vesturlandi. 

Á mánudag:
Norðan 5-10 m/s, skýjað og úrkomulítið, en bjart veður um suðvestanvert landið. Hiti 1 til 6 stig fyrir norðan, en 8 til 13 stig suðvestan til. 

Á þriðjudag:
Norðan 8-15 m/s og dálítil rigning eða slydda á Norðaustur- og Austurlandi. Þurrt og bjart veður sunnan til. Hiti frá frostmarki í innsveitum norðaustanlands, upp í 10 stig með suðurströndinni. 

Á miðvikudag:
Norðanátt og lítilsháttar slydda eða rigning austanlands, en þurrt og bjart á Suður- og Vesturlandi. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast suðvestanlands. 

Á fimmtudag (uppstigningardagur):
Útlit fyrir fremur hæga norðlæga og vestlæga átt. Víða léttskýjað og hlýnar í veðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert