Breytingar á leiðakerfi Strætó

Lítilháttar breytingar taka gildi í leiðakerfistrætó á morgun, sunnudag.
Lítilháttar breytingar taka gildi í leiðakerfistrætó á morgun, sunnudag. mbl.is/Eggert

Leiðakerfi Strætó mun taka lítilsháttar breytingum á morgun, 26. maí. Sumaráætlun verður tekin upp á þremur leiðum á höfuðborgarsvæðinu og nokkrum landsbyggðarleiðum, leið 18 verður breytt og akstur mun hætta klukkustund fyrr á sunnudögum í sumar.

Leiðir 18, 24 og 28 munu aka samkvæmt sumaráætlun frá 26. maí – 17. ágúst. Í stað þess að aka á 15 mínútna fresti á annatímum þá munu leiðirnar aka á 30 mínútna fresti allan daginn.

Breyting á leið 18

Akstursleið leiðar 18 mun breytast lítillega við Vesturlandsveg.

Í stað þess að aka beint á milli Vesturlandsvegar og Húsasmiðjunnar í Grafarholti, þá mun leiðin aka um Vínlandsleið, Krókháls og Grjótháls.

Leið 18 eftir breytingar.
Leið 18 eftir breytingar. Kort/Strætó

Akstur hættir klukkustund fyrr á sunnudögum.

Leiðir 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7 11, 12 (að Breiðhöfða), 15, 18 og 28 (í átt að Hamraborg) munu hætta akstri einni ferð fyrr á sunnudagskvöldum. 

Sumaráætlun á landsbyggðinni

Sumaráætlun hefst á nokkrum landsbyggðarleiðum Strætó. Hér að neðan eru dæmi um breytingar:

  • Tvær ferðir á dag milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði. 

  • Leið 52 ekur tvær ferðir á dag sem passa við ferðir Herjólfs. 

  • Leið 57 milli Akureyrar og Reykjavíkur ekur tvær ferðir alla daga, nema laugardaga.

  • Fleiri ferðir á leiðum 58, 59 og 82 á Vesturlandi.

  • Leið 56 milli Akureyrar og Egilsstaða ekur eina ferð á hverjum degi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert