Tuttugu stúdentar útskrifaðir

Ljósmynd/FAS

Tuttugu stúdentar voru útskrifaðir í dag frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu. Þá lauk einn nemandi námi í fjallamennsku, tveir nemendur luku framhaldsskólaprófi, einn útskrifaðist af fisktæknibraut, einn útskrifaðist úr tækniteiknun og einn nemandi A stigi vélstjórnar að því er segir í fréttatilkynningu frá skólanum.

Með stúdentspróf útskrifuðust Aleksandra Wieslawa Ksepko, Arnar Ingi Jónsson, Arndís Ósk Magnúsdóttir, Birkir Atli Einarsson, Birkir Fannar Brynjúlfsson, Brandur Ingi Stefánsson, Bryndís Arna Halldórsdóttir, Díana Sóldís Einarsdóttir, Guðrún Ása Aðalsteinsdóttir, Halldór Hrannar Brynjúlfsson, Hákon Guðröður Bjarnason, Íris Björk Rabanes, Ísar Svan Gautason, Kristján Vilhelm Gunnarsson, Óttar Már Einarsson, Sóley Lóa Eymundsdóttir, Svandís Perla Snæbjörnsdóttir, Sævar Ingi Ásgeirsson, Viktor Örn Einarsson og Wiktoria Anna Darnowska.

Sigjón Atli Ragnheiðarson lauk námi í fjallamennsku, Kolbeinn Benedikt Guðjónsson og Kristofer Hernandez útskrifuðust af framhaldsskólabraut, Katrín Soffía Guðmundsdóttir útskrifaðist af fisktæknibraut, Helga Sveinbjörnsdóttir lauk námi í tækniteiknun og Þórir Kristinn Olgeirsson lauk A stigi vélstjórnar.

Bestum árangri á stúdentsprófi að þessu sinni náði Arndís Ósk Magnúsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert