FB útskrifaði þúsundasta rafvirkjann

153 nemendur útskrifuðust við hátíðlega athöfn í Hörpu.
153 nemendur útskrifuðust við hátíðlega athöfn í Hörpu. Ljósmynd/Jóhannes Long

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti útskrifaði 153 nemendur við hátíðlega athöfn í Silfurbergi Hörpu í gær. Þar af útskrifuðust 83 nemendur með stúdentspróf, 12 sjúkraliðar, 20 húsasmiðir, 24 rafvirkjar, 11 nemendur af snyrtibraut og 10 nemendur af starfsbraut.

Í tilkynningu frá FB er þess til gamans getið að þúsundasti rafvirkinn úr FB var útskrifaður í gær.

Dúx skólans var Guðmundur Freyr Gylfason, stúdent af náttúruvísindabraut með einkunnina 9,49. Fékk hann verðlaun fyrir bestan árangur  í raungreinum, stærðfræði og spænsku, auk menntaverðlauna Háskóla Íslands.

Dúx skólans var Guðmundur Freyr Gylfason, stúdent af náttúruvísindabraut með …
Dúx skólans var Guðmundur Freyr Gylfason, stúdent af náttúruvísindabraut með einkunnina 9,49. Ljósmynd/Jóhannes Long

Semídúx var Ásta Kristín Marteinsdóttir stúdent að loknu sjúkraliðanámi með einkunnina 9,43 og yngsti stúdentinn sem útskrifaðist var Erla María Theódórsdóttir af náttúruvísindabraut, en hún er aðeins 17 ára og lauk stúdentsprófi á tveimur árum.

Semídúx var Ásta Kristín Marteinsdóttir stúdent að loknu sjúkraliðanámi með …
Semídúx var Ásta Kristín Marteinsdóttir stúdent að loknu sjúkraliðanámi með einkunnina 9,43. Ljósmynd/Jóhannes Long
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert