Færri fá en vilja nýjar íbúðir

Tölvumynd sem sýnir byggingarnar.
Tölvumynd sem sýnir byggingarnar. Ljósmynd/Aðsend

300 manns sóttu um 130 íbúðir í nýju smáíbúðahverfi hjá Þorpinu vistfélagi í Gufunesi. Dregið verður um íbúðir við úthlutun. 

„Þessar viðtökur eru skýrt merki um þann markaðsbrest sem ríkt hefur á fasteignamarkaði.“ Þetta segir Runólfur Ágústsson verkefnastjóri Þorpsins í tilkynningu. „Á meðan fjöldi íbúða sem tekur mið af þörfum og væntingum íbúðarbyggjenda eru óseldar er algjör skortur á litlum hagkvæmum ódýrum íbúðum sem hannaðar eru út frá þörfum og væntingum kaupenda,“ segir hann jafnframt. 

Verðið á íbúðunum er lægra en þekkist á markaði, segir í tilkynningunni. Verð á 4 herbergja íbúð er frá 32 milljónum króna og stúdíóíbúð frá 17 milljónum króna. 

Íbúðirnar eru sagðar vandaðar, umhverfisvænar og ódýrar. Þorpið vistfélag byggir íbúðir sínar í Gufunesi úr timbureiningum (módúlum) sem framleiddar eru innanhúss við kjöraðstæður. Hús úr timbri eru mun vistvænni en hús úr steypu en um 8% af heildarlosun CO2 í heiminum er vegna framleiðslu og notkunar á sementi og steypu.

Í gildandi deiliskipulagi er leyfi til þess að byggja 5-7 hæða blokkir á lóðinni. Hugmyndafræði félagsins byggir hins vegar á lægri og þéttari byggð þar sem 2-4 hæða hús eru byggð í kringum sameiginlegt torg en grænar götur tengja saman byggðina sem opnast út til sjávar. Við torgið verða sameiginlegt þvottahús, kaffihús og veislusalur ásamt pósthúsi fyrir aðsendar vörur og matvæli. Hverfið á þannig að verða sjálfbært þorp þar sem göturnar eru vistgötur fyrir fólk en ekki bíla. 

Þorpið hefur óskað eftir því við Reykjavíkurborg að fá til ráðstöfunar á aðliggjandi grænu svæði reiti fyrir grænmetisgarða og hænsnaræktun. Þá munu þeir íbúar sem það kjósa geta fengið aðgang að rafknúnum deilibílum.

Hugmyndir eru um að íbúar gætu fengi aðgang að rafknúnum …
Hugmyndir eru um að íbúar gætu fengi aðgang að rafknúnum deilibílum. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert