Opnað á umferð um Fjaðrárgljúfur

Umhverfisstofnunin ítrekar þó að ekki megi ganga utan stíga á …
Umhverfisstofnunin ítrekar þó að ekki megi ganga utan stíga á svæðinu. Ljósmynd/Umhverfisstofnun

Búið er að opna fyrir umferð gesta um Fjaðrárgljúfur á ný. Þetta kemur fram í frétt á vef Umhverfisstofnunar, sem lokaði fyrir alla umferð um svæðið í febrúar vegna aurbleytu og gróðurskemmda í kjölfar leysinga.

Lokunin gekk að mestu vel og segir í fréttinni að ljóst sé að gróður á svæðinu hafi tekið afar vel við sér á síðustu vikum.

Umhverfisstofnunin vill engu að síður ítreka við þá sem hyggjast heimsækja gljúfrið, að afar mikilvægt er að reglur svæðisins séu virtar og að ekki sé gengið utan stíga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert