Fjölgaði um nær 8% í borginni

Preziosa og Norwegian Getaway við Skarfabakka.
Preziosa og Norwegian Getaway við Skarfabakka. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tvö risastór skemmtiferðaskip lágu samtímis við Skarfabakka í Sundahöfn í gær. Þau heita MSC Preziosa og Norwegian Getaway og eru um 285 þúsund brúttótonn samtals.

Farþegar og áhafnir eru nærri 10 þúsund talsins og má því segja að mannfjöldinn í Reykjavík hafi aukist um allt að 8% með komu skipanna.

Flestir farþeganna tóku þátt í margvíslegum ferðum sem þeim stóðu til boða, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert