Söfnin urðu af 31,5 milljónum í tekjur

Skoðað er hvernig fjölga megi þeim sem greiða aðgang að …
Skoðað er hvernig fjölga megi þeim sem greiða aðgang að söfnum. mbl.is/​Hari

Yfir 19 þúsund erlendir eldri borgarar sóttu listasöfn Reykjavíkurborgar í fyrra. Hefur þessum eldri gestum fjölgað jafnt og þétt síðustu ár í takt við fjölgun erlendra ferðamanna.

Erlendir eldri borgarar sem sóttu söfnin voru um 650 árið 2013. Á sama tíma hefur fjöldi íslenskra eldri borgara sem sækja listasöfn Reykjavíkurborgar staðið í stað.

Ókeypis er inn á söfnin fyrir 67 ára og eldri og söfnin urðu þannig af yfir 31,5 milljónum króna í tekjum af erlendum eldri borgurum árið 2018. Menningar- og ferðamálasvið borgarinnar skoðar nú hvernig hægt sé að breikka þann hóp sem greiðir einskiptisaðgang að söfnum borgarinnar, að því er fram kemur í  umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert