„Eins og eitthvað brysti innra“

Fimm hafa leitað á spítala með gat á lunga eftir …
Fimm hafa leitað á spítala með gat á lunga eftir rafrettureykingar það sem af er þessu ári. mbl.is/​Hari

Það sem af er þessu ári hafa fimm einstaklingar leitað á Landspítala með gat á lunga sem virðist mega rekja til rafrettureykinga. Þetta er talsverð fjölgun á slíkum tilfellum frá fyrri árum og má líklega rekja til aukningar á rafrettureykingum eða veipi að mati Tómasar Guðbjartssonar, prófessors og læknis á hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala sem hefur meðhöndlað þessa sjúklinga.

„Þetta er í flestum tilfellum ekki lífshættulegt ástand, en getur verið býsna alvarlegt og er óþægilegt fyrir þann sem fyrir þessu verður,“ segir Tómas.

Í fjórum tilvikum féll annað lungað saman, sem kallast loftbrjóst og hjá einum sjúklingi myndaðist svokallað loftmiðmæti. „Þá klýfur loftið sig inn miðmætið, sem liggur á milli lungnanna og umlykur hjartað, barkann og vélindað,“ segir Tómas sem ritar grein um þessi tilvik í nýjasta tölublað Læknablaðsins ásamt Úlfi Thoroddsen lækni á hjarta- og lungnaskurðdeildinni. Hann segir að í öllum þessum tilvikum hafi verið um að ræða unga karla þar sem innöndun ertandi veipgufu virðist koma við sögu. „Veipgufan er ertandi, hún veldur hóstakasti og yfirþrýstingi í lungum og getur rofið gat á þau. Svipuðum tilfellum hefur verið lýst erlendis eftir kannabis- og krakkreykingar, enda er reynt að halda reyknum eins lengi í lungunum og hægt er til að fá sem mest áhrif af því efni sem verið er að reykja,“ segir Tómas.

Brjóstverkir og rám rödd

Í greininni í Læknablaðinu segir frá ungum og hraustum karlmanni sem leitaði á bráðamóttöku Landspítala vegna skyndilegra brjóstverkja. Skömmu áður hafði hann reykt rafrettu sem olli öflugu hóstakasti, verkurinn versnaði við djúpa innöndun og við hreyfingu og kyngingu og rödd unga mannsins varð rámari. Eftir myndrannsóknir kom í ljós að um var að ræða loftmiðmæti og var maðurinn lagður inn á spítalann þar sem hann fékk viðeigandi meðferð.

Yfirleitt ekki lífshættulegt

Tómas segir að ungi maðurinn hafi greint frá því að eftir að hann hefði haldið reyknum lengi niðri í sér hefði honum skyndilega fundist eins og eitthvað brysti inni í sér. „Þó að loftmiðmæti sé að öllu jöfnu ekki lífshættulegt nema í einstaka tilfellum, t.d. þegar fólk er statt þar sem loftþrýstingur er lágur, þá er þetta klárlega alvarlegur atburður; sárt og heldur dramatískri upplifun fyrir fólk. Þegar lungað fellur saman verður síðan að koma fyrir slöngu og hífa lungað upp,“ segir Tómas.

Að sögn Tómasar hafa langtímaáhrif rafrettna á lungu lítið verið rannsökuð. „Það er þó talsvert af rannsóknum í gangi á þessu núna þar sem m.a. er verið að skoða astma og áhrif á lungnaþembu,“ segir hann. „Það er þó alveg ljóst að rafrettur geta engan veginn talist heilsusamlegar, hvað þá fyrir þá sem eru með viðkvæm lungu.“

Segir marga telja rafrettur algerlega skaðlausar

Rafrettur eða veipur innihalda ekki krabbameinsvaldandi efni líkt og hefðbundnar sígarettur, en nikótínvökvinn sem notaður er í þær getur innihaldið jafn mikið, jafnvel meira, nikótín en reyktóbak. Rannsókn rannsóknamiðstöðvarinnar Rannsóknir og greining, sem gerð var í fyrra, sýndi að hátt í helmingur nemenda í 10. bekk grunnskóla hefur reykt rafrettur og að tæpur fjórðungur reykti þær daglega. Hlutfall barna og unglinga sem veipa hefur aukist ár frá ári og hefur það m.a. verið rakið til þess að vökvinn hefur verið markaðssettur sem litríkt sælgæti.

Í reglugerð um merkingar á umbúðum rafrettna og áfyllinga, sem tók gildi um nýliðin mánaðamót, segir meðal annars að merkingarnar skuli vera áberandi, þekja 30% af pakkningunni, umbúðir megi ekki gefa í skyn að innihaldið dragi úr áhrifum skaðlegra efna eða hafi eiginleika sem geti aukið lífsþrótt eða lækningarmátt. Þá megi umbúðirnar hvorki líkjast matvælum né snyrtivörum.

Tómas segir þessar reglur vissulega geta verið til bóta og að þær muni vonandi stuðla að því að veip höfði síður til barna og unglinga. „Við læknarnir verðum stundum varir við að fólk telur þetta vera algerlega skaðlaust,“ segir hann. „En nikótín, sem er eitt mest ávanabindandi efni sem til er, getur aldrei verið gott efni til að innbyrða sama í hvaða formi það er. Hvað þá þegar um er að ræða börn og unglinga, en þetta er orðinn sannkallaður faraldur þar sem afleiðingarnar eru óljósar. Okkur læknum ber að vara við því sem er ekki heilsusamlegt fyrir fólk og það er mikilvægt að foreldrar séu vakandi fyrir þessu. Að mínu mati og margra annarra lækna ætti einungis að selja veip gegn lyfseðli til fullorðins fólks sem vill hætta að reykja tóbak.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert