Erlendum farþegum fækkaði um fjórðung

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Hari

Brottfarir erlendra farþega frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll voru um 126 þúsund í maí eða um 39 þúsund færri en í sama mánuði í fyrra,  samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkun milli ára nemur 23,6% eða næstum fjórðungi. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ferðamálastofu.

Fækkun hefur verið alla mánuði frá áramótum. Í janúar fækkaði brottförum um 5,8%, í febrúar um 6,9%, í mars um 1,7% og í apríl um 18,5%. 

Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í maí eða fjórðungur brottfara og fækkaði þeim um 38,7% milli ára. Brottfarir í maí í ár eru álíka margar og í maí árið 2016.

Frá áramótum hafa 705 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 11,2% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.

Þjóðverjar voru í öðru sæti hvað varðar flestar brottfarir í maí, eða níu þúsund talsins, og fækkaði þeim um 23,8% milli ára. Bretar voru í þriðja sæti, eða tæplega níu þúsund talsins, og fækkaði þeim um 16%.

Þar á eftir fylgdu brottfarir Pólverja (6,5% af heild), Kanadamanna (4,6% af heild), Frakka (4,6% af heild), Kínverja (3,4% af heild), Norðmanna (3,3% af heild), Svía (3,3% af heild) og Dana (3,2% af heild).

Um 57 þúsund Íslendingar fóru utan í maí í ár eða 9,3% færri en í maí í fyrra. Frá áramótum hafa 185 þúsund Íslendingar farið utan eða 1,8% færri en á sama tímabili í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert