11 álfígúrur vaka yfir borginni

Ellefu fígúrur úr steyptu áli hafa verið settar upp á þak Fjárrmála- og efnahagsráðuneytisins þar sem þær munu vaka yfir miðborginni í sumar. Listaverkið nefnist Tákn og er eftir Steinunni Þórarinsdóttur. 

Í tilkynningu Listasafns Reykjavíkur sem stendur fyrir uppsetningunni kemur fram að:

Steinunn Þórarinsdóttir hefur unnið fjölda verka í almannarými hérlendis sem erlendis og það hefur verið stór hluti af hennar listrænu starfsemi alla tíð. Um er að ræða 11 fígúrur úr steyptu áli sem Steinunn vann á árunum 2015-2017 – upphaflega fyrir sögusafn þýska hersins í Dresden.

Tákn var sett upp á safnabygginguna í Dresden sem áður hýsti vopnabúr þýska hersins. Þar höfðu staðið fígúrur í anda hernaðar en þeim var stolið í stríðinu árið 1943 og hafa aldrei fundist þrátt fyrir töluverða leit.

Uppsetningin verksins hlaut menningarstyrk Borgarsjóðs og er jafnframt styrkt af Vélsmiðjunni Héðni og BM Vallá og unnin í góðu samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið sem hefur aðsetur í húsinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert