18 sektaðir fyrir leikinn gegn Albaníu

Laugardalsvöllur.
Laugardalsvöllur. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu minnir knattspyrnuáhugamenn á að leggja löglega fyrir landsleik Íslands og Tyrklands í kvöld en fyrir leikinn gegn Albaníu á laugardaginn voru átján ökumenn sektaðir fyrir stöðubrot.

Fram kemur á Facebook-síðu lögreglunnar að það sé ekki mikið þegar um slíkan viðburð er að ræða og að almennt séð hafi lagningar ökutækja verið til fyrirmyndar.

Vallargestir eru hvattir til að mæta tímanlega í kvöld en lögreglan spáir íslenska liðinu 1-0 sigri á því tyrkneska.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert