Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, fundaði í dag með Mehmet Muharrem Kasapoğlu íþróttamálaráðherra Tyrklands sem er staddur hér á landi til þess að fylgjast með leik karlalandsliða Tyrklands og Íslands í knattspyrnu.
„Við áttum ánægjulegan og fróðlegan fund og ræddum vítt og breitt um áherslur landanna á íþróttasviðinu. Við ræddum meðal annars um mikilvægi almenningsíþrótta en Tyrkir hafa unnið að því að undanförnu að auka þátttöku almennings í íþróttastarfi, ekki síst barna og unglinga. Á þeim sviðum höfum við Íslendingar mörgu að miðla,“ er haft eftir Lilju í frétt á vef stjórnarráðsins. „Við hlökkum bæði til leiksins á eftir og erum sammála um mikilvægi íþróttanna sem sameiningarafls.“
Skiptust ráðherrarnir á landsliðstreyjum á fundi sínum og bauð Kasapoğlu Lilju að koma á seinni leik liðanna sem fara mun fram í Tyrklandi í október.