Næstminnsta úrkoma á öldinni í byrjun júnímánaðar

Víða hefur verið mjög sólríkt og hlýtt það sem af …
Víða hefur verið mjög sólríkt og hlýtt það sem af er sumri. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Úrkoma á landinu hefur aðeins mælst 1,9 mm það sem af er júnímánuði, sú næstminnsta sömu daga á öldinni. Sjónarmun þurrara var sömu daga árið 2012.

Þetta kemur fram á vef Trausta Jónssonar veðurfræðings, Hungurdiskum, en þurrt hefur verið um nær allt land. Miðast færsla hans við 10. júní.

Árin 1924 og 1935 mældist engin úrkoma í Reykjavík fyrstu tíu daga júnímánaðar. Aðeins ellefu sinnum hefur úrkoma mælst minni en nú. Á Akureyri hefur úrkoma mælst 3,0 mm, langt neðan meðallags.

Það sem af er júní hefur verið bjart og þurrt syðra, en svalara nyðra að því er segir í færslu Trausta. Meðalhiti í Reykjavík 8,9 stig, en 5,9 stig á Akureyri.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert