Bauð sjálfum sér í grillveislu

Þau Jón Axel, Hjördís Ýr Johnson og Ásgeir Páll á …
Þau Jón Axel, Hjördís Ýr Johnson og Ásgeir Páll á K100 munu draga út fimm heppna áskrifendur til viðbótar næsta miðvikudag. mbl.is/Arnþór Birkisson

Það var kátt á hjalla í útvarpsþættinum „Ísland vaknar“ á K100 í gær þegar dregið var í annað sinn í áskrifendahappdrætti Morgunblaðsins. Voru fimm heppnir áskrifendur dregnir út að þessu sinni og hlutu þeir í vinning úrvals Landmann-grill frá Grillbúðinni, að verðmæti 99.900 krónur.

Hjördís Ýr Johnson, kynningarstjóri Árvakurs, sá um útdráttinn, en vinningshafar voru þau Haraldur Haraldsson, Seltjarnarnesi, Halldór Berg Jónsson, Hafnarfirði, Sigrún Guðný Arndal, Hveragerði, Berglind Tryggvadóttir, Reykjavík og Ásta Angela Grímsdóttir, Hafnarfirði.

Hjördís Ýr segir að allir vinningshafarnir hafi verið hæstánægðir með vinninginn, enda komi það sér heldur betur vel að geta grillað í góða veðrinu sem hefur verið í sumar. Þá hafði einn vinningshafinn frétt af vinningnum í gegnum vin sinn sem heyrði útdráttinn, en sá flýtti sér að hafa samband til að láta bjóða sér í grillveislu um kvöldið.

Dregið verður í áskrifendahappdrættinu í þriðja og síðasta sinn næstkomandi miðvikudag og verða allir áskrifendur Morgunblaðsins, bæði núverandi sem og þeir sem fá sér áskrift á næstu dögum, sjálfkrafa með í pottinum. sgs@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert