Formleg móttökuathöfn vegna Herjólfs

Nýi Herjólfur kemur til Vestmannaeyja á laugardaginn.
Nýi Herjólfur kemur til Vestmannaeyja á laugardaginn. Ljósmynd/Vegagerðin

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra afhendir á laugardaginn Vestmannaeyingum nýja ferju fyrir samgöngur milli lands og Eyja.

Af því tilefni verður efnt til formlegrar móttökuathafnar í Friðarhöfninni í Vestmannaeyjum. Athöfnin hefst kl. 14:15 með ræðum samgönguráðherra, forstjóra Vegagerðarinnar, formanni bæjarráðs og fulltrúa Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs. Prestur Landakirkju mun blessa skipið og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra formlega nefna það, að því er segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Í framhaldi verður skipið bæjarbúum og öðrum gestum til sýnis. Boðið verður upp á veitingar, skemmtiatriði og fleira milli klukkan 14:30 og 16.

Sunnudaginn 16. júní verður skipið jafnframt til sýnis frá kl. 16 til 18.

Bæjarbúar og aðrir gestir eru í tilkynningunni hvattir til að koma niður á bryggju, gera sér glaðan dag og njóta tímamótanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert