10% starfa verði auglýst án staðsetningar

Verkefnahópnum er ætlað að skila tillögu til ríkisstjórnar um sameiginlega …
Verkefnahópnum er ætlað að skila tillögu til ríkisstjórnar um sameiginlega aðgerðaáætlun um framkvæmd verkefnisins fyrir lok þessa árs. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að skipa verkefnahóp til að undirbúa átak á vegum Stjórnarráðsins að skilgreina störf í ráðuneytum og stofnunum þess og auglýsa þau án staðsetningar eins og kostur er.

Er þetta í takt við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og stefnumarkandi byggðaáætlun, að því er segir í tilkynningu.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, segir mikilvægt að fjölga fjölbreyttum störfum á vegum hins opinbera um land allt. „Með nútímasamskiptatækni er hægt að vinna fjölmörg störf hvar sem er án vandkvæða. Markmiðið er að skapa betri tækifæri til atvinnu um allt land og jafna búsetuskilyrði,“ segir ráðherra.

Fjallað er nánar um verkefnið „Störf án staðsetningar“ í stefnumarkandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024, sem samþykkt var af Alþingi í júní 2018. Þar voru sett fram þau viðmið er 5% allra auglýstra starfa í ráðuneytum og stofnunum verði án sérstakrar staðsetningar fyrir árslok 2019 og í árslok 2024 verði 10% auglýstra starfa án staðsetningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert