Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Heiðrúnu Kjartansdóttur, 41 árs, en síðast er vitað um ferðir hennar síðastliðinn miðvikudag.
Heiðrún er 165 sm á hæð, grannvaxin og með ljóst axlasítt hár og var klædd í bláar gallabuxur og brúnleita peysu. Hún hefur til umráða bifreið af gerðinni Skoda Fabia, brúna að lit og með skráningarnúmerinu PT-893.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Heiðrúnar, eða vita hvar hún er niðurkomin, er vinsamlegast beðnir um að hafa strax samband við lögreglu í síma 112.
Uppfært: Heiðrún komst í leitirnar síðdegis á sunnudag og þakkaði lögreglan veitta aðstoð.