Uppbygging gæti senn hafist

Lónið yrði í botni Stóradals.
Lónið yrði í botni Stóradals. Tölvuteikning/Stúdíó Grandi

Uppbygging baðlóns í Hveradölum á Hellisheiði gæti hafist á næsta ári að loknu umhverfismati að sögn Þóris Garðarssonar, stjórnarformanns Gray Line, en Skipulagsstofnun hefur nú til kynningar tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.

Samkvæmt tillögunni er ráðgert að 600 þúsund gestir heimsæki Hveradali fyrsta heila starfsárið eftir uppbyggingu ferðaþjónustunnar í Hveradölum og að meirihluti þeirra fari í lónið sjálft sem verður 8.500 fermetrar að flatarmáli.

Þá er áformuð viðbygging við skíðaskálann í Hveradölum, uppsetning skíðalyftu og bygging gróðurhúss og þjónustuhúss fyrir ferðafólk auk bílastæða og gönguleiða um svæðið, að því  er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert