17 fá styrk fyrir 90 milljónir

Styrkþegar og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Styrkþegar og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Styrkjum úr Jafnréttissjóði Íslands fyrir árið 2019 var úthlutað í dag við hátíðlega athöfn í Björtuloftum í Hörpu. Alls var tæplega 91 milljónum króna úthlutað í styrki til 17 verkefna og rannsókna.

Eftir því sem fram kemur á vef Forsætisráðuneytisins er markmið sjóðsins að styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti í íslensku samfélagi sem og á alþjóðavísu. Sjóðurinn var stofnaður 19. júní árið 2015 með samþykkt þingsályktunar í tilefni af 100 ára kosningaréttarafmæli íslenskra kvenna. Nýtur sjóðurinn framlaga af fjárlögum í fimm ár og er um að ræða 100 milljóna króna á ári frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2020.

Alls bárust 76 umsóknir og hlutu þrjú verkefni hvert um sig 9 milljóna króna styrki sem eru hæstu styrkirnir að þessu sinni.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráherra, flutti ávarp við athöfnina og minnti í máli sínu á þau tímamót sem urðu þegar íslenskar konur fengu kosningarrétt í tveimur áföngum árin 1915 og 1920 og fjallaði um baráttu þeirra kvenna sem kvöddu sér hljóðs um mikilvægi jafnréttis kynjanna til menntunar og atvinnu.

„Þekking er undirstaða þess að við getum skilgreint og framkvæmt þau nauðsynlegu verkefni sem miða að réttlátara samfélagi. Jafnréttissjóður hefur meðal annars það hlutverk að tryggja þekkingarsköpun á sviði kynjarannsókna sem eru grundvöllur vandaðrar stefnumótunar í málaflokknum,“ sagði Katrín.  

Í samræmi við ályktun Alþingis og úthlutunarreglur sjóðsins leggur stjórn hans áherslu á að „veita fé til verkefna sem meðal annars hafa að markmiði að efla jafnrétti á vinnumarkaði, varpa ljósi á samfélags- og efnahagslegan ávinning af jafnrétti, vinna gegn kynbundnu ofbeldi, styðja við þróunarverkefni í skólakerfinu, hvetja ungt fólk til aukinnar samfélagsþátttöku og stjórnmálastarfs og varpa ljósi á stöðu kynjanna jafnt í samtíð sem fortíð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert