Býður upp á umbúðalaust grænmeti og ávexti

Í grænmetisdeildinni eru ekki plastpokar heldur er boðið upp á …
Í grænmetisdeildinni eru ekki plastpokar heldur er boðið upp á bréfpoka. Ljósmynd/Aðsend

SUPER1 hóf í dag, fyrst íslenskra verslunarkeðja, sölu á umbúðalausu grænmeti og ávöxtum í verslun sinni að Faxafeni 14. Þetta er tilraunaverkefni og fyrirhugað er að umbreyta grænmetisborðum í öðrum verslunum á sama hátt ef vel gengur.

Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri verslunarinnar, segir í tilkynningu, að SUPER1 sé fyrst íslenskra verslunarkeðja sem stígi þetta skref.

Fram kemur, að allar vörur í grænmetis og ávaxtaborði séu án umbúða, ef frá er talið pappírsöskjur undir viðkvæmar vörur, og selt eftir vigt. Verslunin hafi í framhaldinu hætt notkun á plastpokum undir grænmeti og bjóði þess í stað upp á pappírspoka.

Grænmeti og ávextir í Super1
Grænmeti og ávextir í Super1 Ljósmynd/Aðsend

Þá segir, að það sé viðbúið að sala eftir vigt minnki matarsóun enda sé óþarfi að henda heilum pakkningum þrátt fyrir að lítill hluti sé skemmdur.

SUPER1 er ný verslunarkeðja sem rekur 3 verslanir á höfuðborgarsvæðinu. Eru verslanirnar reknar í nánu samstarfi við norræna verslunarrisann REMA1000 sem leggur ríka áherslu á lífrænar vörur, minni matarsóun og umhverfisvernd, að því er segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert