Framhaldsskólar fá ekki skerðingu

Ekki stendur til að draga úr hækkun framlags til framhaldsskólastigsins …
Ekki stendur til að draga úr hækkun framlags til framhaldsskólastigsins sem gerð var árin 2017 til 2019. mbl.is/Golli

Framlög til framhaldsskólastigsins hafa hækkað um tæpa fimm milljarða frá árinu 2017 til 2019, eða 15,8%. Sú hækkun mun haldast inni í fjármálaáætlun fyrir árin 2020 til 2024 þó að framlög hækki ekki eins og stóð til, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

„Endurskoðuð áætlun felur í sér lækkun framlaga um 0,3%-0,9% á ári frá fyrri fjármálaáætlun en framlög á hvern nemanda munu hækka á tímabilinu 2020-2024 þar sem ekki er ráðgert að lækka framlög til reksturs framhaldsskóla vegna styttingar náms til stúdentsprófs,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Aðhaldskrafa verður ekki gerð til skólanna

Fram kemur að lækkun útgjaldasvigrúms til framhaldsskólastigsins um 250 milljónir mun ekki leiða til aðhaldskröfu gagnvart skólunum sjálfum, heldur með „aðhaldi til einstakra verkefna á málefnasviðinu.“

Þá „fellur niður tímabundið framlag vegna sértækra verkefna sem veitt var til eins árs á fjárlögum 2019, alls 90 milljónir kr.“

„Í kjölfar styttingar framhaldsskólanna hefur nemendum á framhaldsskólastigi fækkað, þeir eru nú um 22.300 í 30 skólum víðsvegar um landið. Auknir fjármunir sem runnið hafa til skólanna undanfarin ár gera þeim kleift að efla sitt skólastarf, meðal annars með því að bæta námsframboð, styrkja stoðþjónustu og endurnýja búnað og kennslutæki,“ segir í tilkynningunni.

Jafnframt sé unnið að því að innleiða nýtt reiknilíkan fyrir deilir fjármagni milli skóla á gagnsærri hátt en áður. Talið er að þetta muni auðvelda skólunum „að styðja við ákveðna nemendahópa, s.s. nemendur í brotthvarfshættu. Áhrifa endurskoðunar reiknilíkansins er þegar farið að gæta í skiptingu fjármagns milli skólanna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert