Sést til sólar milli skýjanna

Útlit er fyrir svipað veður á landinu í dag og var í gær. Búast má við norðanátt, ekki er hún hvöss, heldur víða á bilinu 3-8 m/s.

„Á Norður- og Austurlandi eru horfur á þungbúnu veðri og dálítilli rigningu eða súld. Sunnan- og vestanlands verður skýjað með köflum og ekki er loku fyrir það skotið að stöku skúrir láti á sér kræla síðdegis. Eitthvað gæti þó sést til sólar milli skýjanna. Hitinn verður frá 5 stigum með norðurströndinni upp í 15 stig á Suðurlandi þegar best lætur. 
Það er skemmst frá því að segja að spáin fyrir morgundaginn er nánast sú sama og fyrir daginn í dag. 

Ef við kíkjum á spána fyrir helgina, þá er það helst að frétta að það lítur út fyrir að það létti til og hlýni norðan- og austanlands. Yfirleitt verður þurrt á landinu og hlýrri loftmassi færist smám saman yfir, sem þýðir að hámarkshiti dagsins verður hærri en í þeirri tiltölulega svölu norðanátt sem ríkir á landinu í dag,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspáin næstu daga

Norðan og norðvestan 3-10 m/s. Dálítil rigning eða súld á Norður- og Austurlandi. Skýjað með köflum sunnan- og vestanlands og stöku skúrir síðdegis. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi. Svipað veður á morgun.

Á föstudag (sumarsólstöður):
Norðvestan 3-8 m/s. Dálítil rigning á Norður- og Austurlandi. Skýjað með köflum sunnan- og vestanlands og stöku skúrir, einkum síðdegis. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi. 

Á laugardag:
Vestlæg átt 3-8 m/s og bjart með köflum. Hiti 10 til 16 stig. Norðlægari og svolítil rigning norðaustan til á landinu framan af degi og svalt í veðri, en léttir til þar síðdegis. 

Á sunnudag:
Suðvestan 3-8. Skýjað með köflum vestanlands, en víða bjart í öðrum landshlutum. Hiti 12 til 18 stig. 

Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Vestlæg átt, víða léttskýjað og hlýtt í veðri. Skýjað að mestu með vesturströndinni og svalara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert