Íslendingarnir líklega ekki sýktir af Chikungunya-veirunni

Á næstu dögum er fyrirhugað að gera frekari staðfestingapróf á …
Á næstu dögum er fyrirhugað að gera frekari staðfestingapróf á Íslendingunum hér á landi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslendingar sem taldir voru vera sýktir af Chikungunya-veiru reynast að öllum líkindum ekki vera með sýkinguna að því er Embætti landlæknis greinir frá. 

Vísað er til nýlegra frétta um að fjórir Íslendingar, sem dvöldust á Alicante á Spáni, hefðu sýkst þar af Chikungunya-veiru. Þrír einstaklinganna eru búsettir á Íslandi og einn í Noregi.

„Fyrstu rannsóknarniðurstöður bentu til Chikungunyaveirusýkingar en við frekari rannsóknir hafa staðfestingarpróf hér á landi og erlendis ekki staðfest sýkinguna.

Á næstu dögum er fyrirhugað að gera frekari staðfestingapróf á Íslendingunum hér á landi sem munu skera endanlega úr um það hvort um ofangreinda sýkingu var að ræða eða ekki,“ segir á vef landlæknis.

Þar segir ennfremur, að fólkið hafi verið upplýst um þessa niðurstöðu sem og samstarfsaðilar á Spáni.

Þá er tekið fram, að allra leiða verði leitað í framtíðinni til að koma í veg fyrir að svona atvik endurtaki sig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert