HR brautskráði 627 nemendur í Hörpu

Ari Kristinn Jónsson rektor Háskólans í Reykjavík.
Ari Kristinn Jónsson rektor Háskólans í Reykjavík. Ljósmynd/Eva Björk

Háskólinn í Reykjavík brautskráði 627 nemendur við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag. Af þeim voru 400 nemendur brautskráðir úr grunnnámi, 225 nemendur úr meistaranámi og tveir nemendur útskráðust með doktorsgráðu. Í útskriftarhópnum voru 301 kona og 326 karlar.

Var þetta í fyrsta skipti sem brautskráð var frá sjö deildum samkvæmt nýju skipulagi háskólans.

Flestir nemendur luku námi frá verkfræðideild háskólans, samtals 152 nemendur. Frá viðskiptadeild útskrifuðust 143 nemendur og 125 útskrifuðust frá tölvunarfræðideild.

Sálfræðideild útskrifaði 76 nemendur og lagadeild 62 nemendur. Frá iðn- og tæknifræðideild útskrifuðust 36 nemendur, allir úr grunnnámi og loks útskrifuðust 33 nemendur frá íþróttafræðideild.

Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík ávarpaði útskriftarnema og hafði orð á því hversu mikla ábyrgð háskólar bæru þegar kæmi að því að undirbúa samfélagið fyrir framtíðina. Hann kynnti nýja stefnu sem háskólinn hefur sér til að standa undir þeirri ábyrgð. Hann sagði meðal annars:

„Í menntun horfum við til þess að mæta nýrri kynslóð nemenda og nýjum þörfum samfélags með auknum sveigjanleika, stafrænni tækni og verkefnadrifnu námi í samstarfi við atvinnulíf og alþjóðlega samstarfsaðila. Um leið horfum við til þess að mæta nýjum menntunarþörfum þeirra sem þegar eru á vinnumarkaði, þar með talið útskrifuðum HR-ingum.

Háskólinn í Reykjavík brautskráði 627 nemendur í Hörpu í dag.
Háskólinn í Reykjavík brautskráði 627 nemendur í Hörpu í dag. Ljósmynd/Eva Björk

Þannig tryggjum við menntun til tækifæra, fyrir alla og á öllum æviskeiðum. Í þekkingu leggjum við áherslu á að skapa þekkingu sem styður við framþróun samfélagsins, að miðla nýjustu þekkingu erlendis frá og verða miðstöð þeirrar þekkingar sem þarf til að brúa milli samfélags og tæknibyltingar.“

Viðskiptaráð Íslands veitti nemendum verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í grunnnámi og þau hlutu;

Esther Ýr Óskarsdóttir BA í lögfræði,
Jevgenij Stormur Guls BSc í vél- og orkutæknifræði,
Þóra Kristín Jónsdóttir BSc í íþróttafræði,
Guðrún Þóra Sigurðardóttir BSc í hátækniverkfræði,
Matthías Davíðsson BSc í tölvunarfræði,
Karen Kristinsdóttir BSc í sálfræði og
Sverrir Bartolozzi BSc í hagfræði og fjarmálum.

Streymi frá brautskráningu HR

Það var margt um manninn í Hörpu.
Það var margt um manninn í Hörpu. Ljósmynd/Eva Björk
Í útskriftarhópnum þetta vorið voru 301 kona og 326 karlar.
Í útskriftarhópnum þetta vorið voru 301 kona og 326 karlar. Ljósmynd/Eva Björk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert