Kveiktu varðeld nærri Sólbrekkuskógi

Ekki er heimilt að kveikja varðeld þegar jafn þurrt er …
Ekki er heimilt að kveikja varðeld þegar jafn þurrt er í veðri og nú er. Þessi mynd er aftur á móti úr safni mbl.is. mbl.is/Golli

Nokkur ungmenni voru staðin að því í fyrrakvöld að kveikja varðeld nærri Sólbrekkuskógi í Reykjanesbæ. Slökkviliðsmenn mættu á staðinn og slökktu í glæðunum. Lögreglumenn á Suðurnesjum ræddu við ungmennin og komu þeim í skilning um að þetta  uppátæki gæti verið mjög hættulegt þar sem ekki hefði komið dropi úr lofti í langan tíma.

Allmörg umferðarlagabrot komu á borð lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Ökumaður sem var með tvö börn sín í bifreið sinni var grunaður um fíkniefnaakstur. Viðkomandi var handtekin og færð á lögreglustöð þar sem sýnatökur sýndu jákvæða niðurstöðu á fíkniefnaneyslu.

Þá voru nokkrir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 126 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert