Sláttur hófst tíu dögum fyrr í ár

Sum svæði eru minna slegin en önnur, t.d. við Ægisíðu …
Sum svæði eru minna slegin en önnur, t.d. við Ægisíðu í Reykjavík. mbl.is/RAX

Grassláttur er sagður ganga vel í Reykjavík og er önnur umferð þegar hafin, að sögn Björns Ingvarssonar, deildarstjóra Þjónustumiðstöðvar borgarlandsins.

Sláttur hófst tíu dögum fyrr í ár en vant er og er það vegna góðviðrisins sem borgarbúar hafa fengið að njóta í sumar. Sláttur hefst venjulega í kringum 26. maí, en í ár hófst hann 16. maí sl.

„Fyrstu umferð er lokið og lauk að mestu fyrir 17. júní. Það er ekkert endilega meiri sláttur í ár en við byrjuðum 10 dögum fyrr vegna veðurfarsins,“ segir Björn í Morgunblaðinu í dag. Grunn- og leikskólalóðir og borgarland verður slegið þrisvar, við þjóðvegi í þéttbýli fjórum sinnum og almenningsgarðar allt að 15 sinnum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert