13 milljónir í réttindabaráttu hinsegin fólks

AFP

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur ákveðið að verja þrettán milljónum króna til UN Free & Equal, sérstaks verkefnis sem skrifstofa mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) heldur utan um til að vinna að útbreiðslu réttinda hinsegin fólks (LGBTI) hvarvetna í heiminum. Framlagið er í samræmi við áherslur Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna en ráðið kemur til síns 41. reglulega fundar á morgun í Genf í Sviss. Þetta kemur fram í frétt á vef ráðuneytisins.

Réttindi hinsegin fólks hafa verið meðal helstu áhersluþátta Íslands í mannréttindaráði SÞ en Ísland var fyrir réttu ári kjörið til setu í mannréttindaráðinu. Þannig bar til dæmis Ísland upp fleiri tilmæli en nokkuð annað ríki er snertu LGBTI-réttindi í allsherjarúttekt á stöðu mannréttindamála í fjórtán aðildarríkjum SÞ í maí sl. Auk þess er réttindum hinsegin fólks iðulega haldið til haga í málatilbúnaði Íslands í ræðum og yfirlýsingum.

„Hinsegin sambönd teljast enn glæpur í meira en þriðjungi ríkja heims. Með fjárframlaginu og áframhaldandi áherslu á réttindi hinsegin fólks í mannréttindaráðinu og þróunarsamvinnu leggjum við okkar lóð á vogarskálar í þeirri viðleitni að breyta þessu. Við kunnum að vera ólík, en öll eigum við að njóta sömu mannréttinda,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, í frétt á vef utanríkisráðuneytisins.

Fjárframlagið er sömuleiðis í samræmi við nýja stefnu Íslands í þróunarsamvinnu fyrir árin 2019-2023, sem Alþingi samþykkti í maí sl., og nýrri skýrslu utanríkisráðuneytisins þar sem mörkuð er sú nálgun að allt starf Íslands í þróunarsamvinnu sé mannréttindamiðað. Ísland fylgist því sérstaklega grannt með stöðu mála hvað varðar réttindi hinsegin fólks í samstarfsríkjum og áhersluríkjum í þróunarsamvinnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert