Fluttur á slysadeild eftir útafakstur

Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. mbl.is/Eggert

Ökumaður fólksbifreiðar var fluttur á slysadeild í kvöld eftir útafakstur við Meðalfellsvatn í Kjós. Hafnaði bifreiðin út í skurði og þurfti að beita klippum til að ná ökumanninum úr bílnum.

Var viðkomandi einn í bifreiðinni en samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins varð töluvert tjón á bifreiðinni.

Ekki er vitað um ástand ökumannsins sem stendur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert