Tveggja bíla árekstur við Nordica

Lögregla og slökkvilið voru kölluð út þegar tveggja bíla árekstur …
Lögregla og slökkvilið voru kölluð út þegar tveggja bíla árekstur varð við Nordica á Suðurlandsbraut í kvöld. Ljósmynd/Aðsend

Tveggja bíla árekstur varð í námunda við Hótel Nordica á Suðurlandsbraut upp úr hálfellefu nú í kvöld.

Samkvæmt upplýsingum frá varðstofu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru meiðsl minni háttar.

Dælubíll frá slökkviliðinu var sendur á staðinn til að verja vettvanginn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert