120 milljónir í endurnýjun leiksvæða

Áætlað er að framkvæmdir hefjist í júní og verði lokið …
Áætlað er að framkvæmdir hefjist í júní og verði lokið í september 2019. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 120 milljónir króna. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Borgarráð Reykjavíkur hefur heimilað umhverfis- og skipulagssviði borgarinnar að bjóða út framkvæmdir vegna sex opinna leiksvæða í Grafarvogi og Vesturbæ. Um er að ræða endurgerð leiksvæða við Berjarima, Flétturima, Hrísrima, Frostaskjól, Granaskjól og Öldugötu.

Áætlað er að framkvæmdir hefjist í júní og verði lokið í september 2019. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 120 milljónir króna, að því er borgin greinir frá.

Endurgerðin felur í sér landmótun, endurnýjun gróðurbeða, leiktækja og yfirborðsefna eftir þörfum, að því er borgin greinir frá í tilkynningu.

Verður áhersla lögð á öryggismál, betri fallvarnarefni, bætta lýsingu og aðgengi fyrir alla. Endurgerðin taki mið af leiksvæðastefnu Reykjavíkurborgar og unnið sé með hugmyndafræði snjallvæðingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert