29 vændiskaupamál í ár

mbl.isÁrni Torfason

Það sem af er þessu ári hafa komið upp 34 mál hjá embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem grunur er um kaup á vændi. Á sama tíma í fyrra höfðu komið upp sex sambærileg mál.

Þetta kemur fram í svari lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við fyrirspurn Morgunblaðsins. Þegar tölur milli ára eru skoðaðar verður að hafa í huga að miðað er við dagsetningu brots en vegna eðlis málanna koma þau oft til afgreiðslu löngu eftir að brot var framið. Vegna þessa getur verið mikill munur á tölum ef þær eru annars vegar skoðaðar eftir dagsetningu brots og hins vegar dagsetningu skráningar.

Á árinu 2017 komu upp 29 mál þar sem grunur var um kaup á vændi á starfssvæði lögreglunnar á höfuðborgasvæðinu, en árið 2018 voru málin níu, sé miðað við dagsetningar brota, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert