Framhaldsskólar byrji ekki fyrr en kl. 10 eða 11

Nemendur í Háteigsskóla skemmta sér. Margt bendir til þess að …
Nemendur í Háteigsskóla skemmta sér. Margt bendir til þess að hugsanlega sé betra að hefja skóladag síðar á morgnana en verið hefur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti, segir ákjósanlegt að skóladagur unglinga myndi hefjast klukkan 10, jafnvel 11. Hún segir að unglingar verði seinna syfjaðir en fullorðnir og því þyrftu unglingar að sofa til a.m.k. 9 eða 9.30 á morgnana.

Margir skólar hefja kennslu síðar en klukkan átta á morgnana og eru ýmsar ástæður fyrir því. Í Álftanesskóla hefst kennsla á þremur mismunandi tímum vegna byggingarframkvæmda og til að létta á umferð í Garðabæ byrja skólar þar á mismunandi tímum.

Í Grunnskóla Vestmannaeyja mun skóladagurinn hefjast klukkan 8.10 í stað 8 frá og með haustinu. Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri skólans, segist vonast eftir meiri ró í skólabyrjun með þessari breytingu, að því er fram kemur í fréttaskýringu um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert