Tvö fiskiskip fóru úr Ísafjarðarhöfn í gær, áleiðis til Belgíu þar sem þau verða rifin í brotajárn. Arnar Kristjánsson, útgerðarmaður hjá Sólbergi ehf., segir að lítið verð fáist fyrir brotajárn en losa verði skipin úr höfninni.
Skipin eru um 60 ára gömul. Ísborg ÍS 250 var lengi gerð út á rækju frá Ísafirði. Hera ÞH 60 hefur þvælst á milli útgerða í mörg ár en hefur um hríð legið ónotuð á „langlegudeildinni“ í Ísafjarðarhöfn. Hún var upphaflega keypt til Ísafjarðar 1962 af Gunnvöru og hét þá Guðrún Jónsdóttir. Hún er því að sigla í síðasta sinn út úr Ísafjarðarhöfn.
Dráttarbátur Ísafjarðarhafnar aðstoðaði skipin út úr höfninni og út úr Sundunum en eftir það dró Ísborgin Heru. Arnar reiknar með að siglingin taki rúma viku. helgi@mbl.is