Tillitssemi númer eitt, tvö og þrjú

WOW Cyclothon fer fram í áttunda skipti og verða fyrstu …
WOW Cyclothon fer fram í áttunda skipti og verða fyrstu keppendur ræstir í kvöld. mbl.is/Arnþór Birkisson

Hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon hefst í kvöld og búast má við fjölgun hjólreiðafólks á þjóðvegunum í vikunni á meðan keppnin stendur yfir. Rúm­lega 570 kepp­end­ur hafa skráð sig til þátt­töku og leggja ein­stak­ling­ar og kepp­end­ur í Hjólakrafts­flokki af stað frá Eg­ils­höll klukkan sjö í kvöld. Hjólað verður hringveginn norður fyrir og endað við Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði.

VÍS biðlar til allra ökumanna, bæði sem aka vélknúnum ökutækjum og hjólandi, að sýna fyllstu tillitssemi.

„Við hvetjum ökumenn vélknúinna ökutækja til að draga úr hraða þegar þeir fara fram hjá hjólreiðafólki, sérstaklega stórra ökutækja þar sem kjölsogið getur verið hjólreiðafólki erfitt. Jafnframt er mikilvægt að gefa þeim hjólandi gott pláss þegar tekið er fram úr, gæta að umferð á móti og vera reiðubúinn til að bíða í augnablik með framúrakstur vegna hennar,“ segir í tilkynningu frá VÍS

Hjólreiðafólk þarf líka að huga að sínu öryggi. „Aðstæður fyrir það eru ekki alltaf góðar á þessari leið og mikilvægt að það sé meðvitað um sýnileika sinn. Leitist við að hjóla í einfaldri röð þegar það er möguleiki, halda sig hægra megin á veginum og huga að öruggum skiptingum liðsmanna. Eins þarf að tryggja að bílstjóri liðsins sé ávallt vel vakandi og með athyglina við aksturinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert