Fer í 22 stiga hita

Austurlandið hljómar vel fyrir þá sem elta góða veðrið í …
Austurlandið hljómar vel fyrir þá sem elta góða veðrið í dag. mbl.is/RAX

Spáð er björtu og hlýju veðri á austanverðu landinu í dag og fer hitinn hæst í 22 gráður. Aftur á móti er dálítil væta vestan til og bætir í úrkomu þar í kvöld. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

„Vestan- og suðvestanátt í dag, víða 5-13 m/s. Bjart og hlýtt á austanverðu landinu, en dálítil væta vestan til og bætir í úrkomu þar í kvöld. Suðlægari á morgun og rigning með köflum, en þurrt á Norðaustur- og Austurlandi fram á kvöld. Hiti 12 til 24 stig, hlýjast austanlands.
Suðvestan 5-10 á föstudag og víða dálítil rigning, en úrkomulítið síðdegis. Hiti 10 til 18 stig, áfram hlýjast austan til,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Suðvestan og vestan 5-15 m/s, hvassast norðvestanlands. Bjart veður eystra í dag og hiti 14 til 22 stig. Súld vestan til á landinu og rigning í kvöld, hiti 10 til 15 stig. 
Suðvestan 5-13 og rigning með köflum á morgun, en yfirleitt þurrt A-lands. Hlýtt áfram, einkum á austanverðu landinu.

Á fimmtudag:
Suðvestan 5-13 m/s, skýjað og rigning með köflum á S- og V-landi.
Hiti 12 til 24 stig, hlýjast A-lands. 

Á föstudag:
Suðvestan 5-10 og dálítil væta, en úrkomulítið síðdegis og léttir til SA-lands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á SA- og A-landi. 

Á laugardag:
Norðaustanátt, skýjað og og sums staðar smáskúrir. Hiti 6 til 16 stig, mildast SV-lands. 

Á sunnudag:
Norðanátt og skýjað en úrkomulítið. Heldur kólnandi. 

Á mánudag:
Vestlæg átt og skýjað með köflum. Hiti víða 10 til 15 stig síðdegis. 

Á þriðjudag:
Sunnanátt og rigning, en úrkomulítið á NA- og A-landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert