Hringbraut 79 verður íbúðakjarni

Kaupin eru liður í samþykki borgarráðs í janúar 2019 um …
Kaupin eru liður í samþykki borgarráðs í janúar 2019 um forgangsröðun á uppbyggingu og eða kaupum á húsnæði fyrir íbúðakjarna fyrir konur með geðfötlun og fjölþættan vanda. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt kaup borgarinnar á Hringbraut 79 en þar verður íbúðakjarni fyrir fatlað fólk.

Hringbraut 79 samanstendur af tveimur íbúðum ásamt tvöföldum bílskúr. Íbúðirnar skiptast í 7 íbúðaeiningar, sem allar eru með sér eldhúsinnréttingu og baðherbergi. Með húsinu fylgir húsbúnaður, að því er borgin greinir frá í tilkynningu.

Þar segir, að kaupin séu liður í samþykki borgarráðs í janúar 2019 um forgangsröðun á uppbyggingu og/eða kaupum á húsnæði fyrir íbúðakjarna fyrir konur með geðfötlun og fjölþættan vanda.

„Hlutverk kjarnans er að veita þeim aðstoð til að eiga sjálfstætt og innihaldsríkt líf innan og utan heimils með því að mæta þörfum þeirra á heildstæðan og einstaklingsmiðaðan hátt með áherslu á sjálfstætt líf og valdeflandi stuðning. 

Húsið er samtals 395,3 fermetrar að stærð og verður framleigt til velferðasviðs Reykjavíkurborgar.

Á næstu dögum verður auglýst eftir forstöðumanni og í kjölfar þess eftir öðru starfsfólki en í kjarnanum verður sólarhringsþjónusta. Áætlað er að starfsemi hefjist í húsinu síðla næsta haust,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert