Yfir 5 þúsund krefjast friðlýsingar

Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunnar, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra, …
Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunnar, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra, tóku við undiskriftum sem Tryggvi Felixson, formaður Landverndar, og Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, afhentu síðdegis í dag. Haraldur Jónasson/Hari

Fulltrúar Landverndar afhentu Guðmundi Inga Guðbrandssyni umhverfisráðherra í dag undirskriftir 5.431 Íslendinga til stuðnings þess að friðlýsing Drangajökulsvíðerna verði hraðað, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Umrætt svæði nær einnig til athafnasvæði Vesturverks vegna byggingu Hvalárvirkjunar.

Fram kemur í tilkynningu Landverndar að Náttúrufræðistofnun Íslands hafi lagt til að víðernin verði sett á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár og nær sú tillaga illaga til alls áhrifasvæðis fyrirhugaðrar Hvalárvirkjunar.

Undirskriftasöfnunin hefur staðið frá því í febrúar og hefur hún aðeins verið kynnt á samfélagsmiðlum og aðsendum greinum í fjölmiðlum vegna fjárskorts, segir í tilkynningunni. Er tekið fram að enn sé hægt að skrifa undir áskorun um að hraða vinnu við friðlýsingu svæðisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert