Öll lið komin í mark

Þáttakendur í WOW Cyclothon
Þáttakendur í WOW Cyclothon mbl.is/Kristinn Magnússon

Öll liðin sem tóku þátt í WOW Cyclothon eru komin í mark og er keppninni formlega lokið. Allt gekk vel, engin slys urðu og söfnunin er enn í gangi fyrir sumarbúðirnar í Reykjadal, segir Stefanía Gunnarsdóttir hjá WOW Cyclothon. 

Fyrsta og eina fullgilda kvennaliðið í allri keppninni sem nefnist, CTS - ICE ICE Baby, kom í mark á rúmum 57 klukkustundum. Þær eru allar erlendar og þekktust ekki fyrir keppnina.  

Lið parkinson power kom í mark a fimmta tímanum í nótt. Liðið lenti í ýmsum skakkaföllum  á leiðinni en allir komu þó heilir í mark. 

Eina konan, Terri Huebler sem keppti í einstaklingskeppninni, er hætt að hjóla. Hún ætlar að nota restina af deginum til að skoða landið á leiðinni í bæinn, fara í heita laug og mæta í partý í kvöld, að sögn Stefaníu. 

Fyrstur í mark var Bandaríkjamaðurinn Chris Burkard sem setti nýtt ein­stak­lings­met. Hann kom á tím­an­um 52:36:19 og bætti fyrra ein­stak­lings­met Ei­ríks Inga Jó­hanns­son­ar, sem er 56:12:40

Lið Airport Direct kom í mark fyrst liða í WOW Cyclot­hon en fast á hæla þeirra var lið World Class. Þau hjóluðu hringinn á um 37 klukkustundum.  

 

 

Fréttin hefur verið uppfærð

Lið Parkison power er komið í mark
Lið Parkison power er komið í mark Ljósmynd/Aðsend
Eina fullgilda kvennaliðið er komið í mark.
Eina fullgilda kvennaliðið er komið í mark. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert