Vilja mastur á Vestfirði

Ísafjarðarbær.
Ísafjarðarbær. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

VesturVerk hefur sótt um framkvæmdaleyfi til þess að setja upp allt að 80 metra hátt rannsóknarmastur ásamt mælingarbúnaði við Eyrarfjall.  Skipulags- og mannvirkjanefnd Ísafjarðarbæjar frestaði afgreiðslu erindisins. 

VesturVerk áformar nú þegar að reisa Hvalárvirkjum, en framkvæmdarleyfi fékkst frá Árneshreppi fyrr í mánuðinum, áður en landeigendur í Drangavík kærðu leyfisveitinguna til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. 

Í umsókn VesturVerks segir að tilgangur rannsóknarinnar sé að auka þekkingu á aðstæðum á svæðinu til að skapa grundvöll fyrir áætlanagerð á mati á fýsileika vindorkuvers. 

Um er að ræða grindar- eða túbumastur sem er stagað niður með vírum í steypta undirstöðu eða jarðakkeri. 

VesturVerk segir í umsókn sinni að allt að 80 metra hátt rannsóknarmastur sem reist er tímabundið á tilgreindu svæði á Eyrarfjalli sé ekki talið hafa áhrif á nærliggjandi svæði. Ef að til vindnýtingar kæmi sé það ekki heldur talið hafa umsvifamikil áhrif á aðra starfsemi í framtíðinni. Beislun vindorku sé þó ný á Íslandi og því sé mikilvægt að velta fyrir sér bæði kostum og göllum. 

Þá tilgreinir VesturVerk bæði kosti og galla vindmylla í umsókninni. Á meðal galla eru áhrif á landslagið, sjón- og hljóðmengun, skuggaflökt og áhrif á dýralíf. 

Þá eru fjölnýting lands, endurbættir raforku innviðir, raforkuöryggi og frekari uppbygging á meðal þeirra kosta sem nefndir eru. 

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert