Tvö ráðuneyti stíga græn skref

Heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið fengu í dag viðurkenningu fyrir að ná …
Heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið fengu í dag viðurkenningu fyrir að ná Grænum skrefum 3 og 4 samkvæmt áætlun verkefnisins Græn skref í ríkisrekstri. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið hafa öðlast viðurkenningu fyrir að ná Grænum skrefum 3 og 4 samkvæmt áætlun verkefnisins Græn skref í ríkisrekstri.

„Grænu skrefin felast í litlum og stórum aðgerðum til að draga úr sóun og mengun og snúast um að efla vistvænan rekstur ríkisins á kerfisbundinn hátt,“ segir í frétt á vef Stjórnarráðsins. Grænu skrefin eru jafnframt liður í því að innleiða loftslagsstefnu Stjórnarráðsins sem samþykkt var á fundi ríkisstjórnarinnar 9. apríl síðastliðinn.

Öll ráðuneytin og Rekstrarfélag Stjórnarráðsins vinna að innleiðingu grænna skrefa í ríkisrekstri. Sem dæmi um verkefni sem hrint hefur verið í framkvæmd í ráðuneytum má nefna innleiðingu prentskýja sem draga úr pappírsnotkun, flokkun úrgangs, samgöngusamninga, aðstöðu fyrir hjólandi, tilboð um deilibíl, rafhjólatilraun og innkaup á ýmsum umhverfisvottuðum vörum.

Heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið eru með aðsetur í sama húsi og hafa unnið saman að innleiðingu grænu skrefanna. Þess má einnig geta að þau hafa bæði hlotið gullvottun fyrir að vera hjólavænn vinnustaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert