Líkur á aflskorti árið 2022

Í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Landsnet segir að …
Í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Landsnet segir að líkur á aflskorti á Íslandi séu meiri en í fyrri útreikningum.

Líkur er á aflskorti yfir viðmiðunarmörkum árið 2022 að því er fram kemur í nýrri skýrslu um afl- og orkujöfnuð fyrir árin 2019-2023 sem unnin var fyrir Landsnet. Þar kemur fram að líkur á aflskorti á Íslandi séu meiri en í fyrri útreikningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti.

Haft er eftir Sverri Jan Norðfjörð, framkvæmdastjóra þróunar- og tæknisviðs, að tilgangur skýrslunnar sé að reikna út líkur á afl- og orkuskorti með því að bera saman afl- og orkugetu virkjana og notkun raforku næstu fimm árin. Slíkt mat sé mikilvægt bæði fyrir Landsnet en ekki síður fyrir aðra aðila á raforkumarkaði, hvort sem það eru framleiðendur raforku eða notendur. 

Niðurstaða skýrslunnar sýni að mikilvægt sé að fylgjast vel með sveiflunni sem er í útreikningum á milli ára til að geta brugðist við í tíma.

Líkurnar hækka eftir árið 2021

Líkur á aflskorti eru metnar lágar fram til ársins 2021 en hækka svo eftir það. Það mun stafa af því að notkunin aukist væntanlega hraðar en aukning á nýju uppsettu afli virkjana til næstu ára.

„Ef horft er til meðalálags á því tímabili sem fjallað er um í skýrslunni er ekki hægt að segja til um það hvort einhver landshluti verði frekar fyrir orkuskerðingum en annar enda eru flöskuhálsar og flutningsmörk á milli svæða álagsháð. Álagið er breytilegt frá augnabliki til augnabliks þannig að skerðingar vegna flutningstakmarkana yrðu þá, líkt og í dag, háðar því hvert hámarksálag er á hverjum stað á hverjum tíma,“ segir í tilkynningu Landsnets.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert