Verkefnastofa borgarlínu hefur störf

Borgarlínan er í pípunum.
Borgarlínan er í pípunum.

Verkefnastofa borgarlínu hefur nú tekið formlega til starfa og mun sinna undirbúningsverkefnum fyrir fyrsta áfanga borgalínu á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnastofan starfar á grundvelli samkomulags milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, sem lagður var grunnur að í samgönguáætlun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Þar segir að tilgangur verkefnastofunnar sé að ljúka forhönnun borgarlínu, yfirfara leiðarkerfi almenningssamgangna, gera kostnaðarmat, sinna skipulagsvinnu og gerð umhverfismats þannig að í framhaldinu verði hægt að hefja verkhönnun og undirbúa gerð útboðsgagna fyrir framkvæmdir.

Samkomulagið felur í sér að Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) og Vegagerðin skipti með sér kostnaði vegna undirbúningsvinnunnar á árunum 2019 og 2020 og brúi þannig bil þar til samkomulag hefur náðst um fyrirkomulag og fjármögnun á öllum samgöngukerfum á höfuðborgarsvæðinu næstu 15 árin.

Á verkefnastofunni eru þrír verkefnastjórar, þau Bryndís Friðriksdóttir samgönguverkfræðingur, Hrafnkell Á. Proppé skipulagsfræðingur og Lilja G. Karlsdóttir samgönguverkfræðingur. Verkefnateymið mun njóta tilfallandi stuðnings sérfræðinga Vegagerðarinnar, sveitarfélaganna og Strætó bs.

BRT Planning International (BRTPlan) mun vera Verkefnastofu til ráðgjafar í ferlinu. Fyrirtækið starfar í Brooklyn í New York í Bandaríkjunum og hefur komið að skipulagi og framkvæmdum BRT kerfa í norður og suður Ameríku, Asíu, Afríku og Evrópu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert