Tvö börn til viðbótar með E. coli

Samtals tólf börn hafa greinst með E. coli-bakteríuna.
Samtals tólf börn hafa greinst með E. coli-bakteríuna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tvö börn til viðbótar hafa greinst með E.coli bakteríunni og eru þau þá samtals orðin tólf talsins. Þetta staðfestir Viðar Örn Eðvarðsson, sérfræðingur í nýrnalækningum barna, í samtali við mbl.is.

Þetta kom í ljós við rannsóknir á hægðarsýnum barnanna og niðurstöðurnar bárust fyrir rúmlega klukkustund síðan.

Ekki er ljóst hvaðan börnin tvö smituðust en Viðar telur líklegt að öll smitin eigi uppruna sinn á ferðaþjónustubænum á Efstadal II.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert