Skjálfti af stærð 3,2 í Torfajökulsöskju

Síðast urðu skjálftar af þessari stærðargráðu á svæðinu í janúar …
Síðast urðu skjálftar af þessari stærðargráðu á svæðinu í janúar 2019 og agúst 2018. mbl.is/RAX

Jarðskjálfti af stærðinni 3,2 varð í Torfajökulsöskju, um 11 kílómetra vestsuðvestur af Landmannalaugum, klukkan 17:16 í dag.

Nokkrir minni eftirskjálftar hafa mælst, en síðast urðu skjálftar af þessari stærðargráðu á svæðinu í janúar 2019 og ágúst 2018. Engar tilkynningar hafa borist Veðurstofunni um að fólk hafi fundið fyrir skjálftanum, en ekki er útilokað að ferðafólk á svæðinu hafi orðið hans vart.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert