Varðskipið Týr sækir veikan mann í farþegaskip

Varðskipið Týr á siglingu. Mynd úr safni.
Varðskipið Týr á siglingu. Mynd úr safni. mbl.is/Árni Sæberg

Varðskipið Týr sótti í nótt veikan mann um borð í farþegaskip norðaustur af Horni. Skömmu fyrir miðnætti hafði skipið samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskaði eftir að eldri maður með mögulega heilablæðingu væri sóttur um borð í skipið og honum komið undir læknishendur í landi.

Ekki reyndist mögulegt að senda þyrlu og var varðskipið Týr, sem statt var á Vestfjarðamiðum, sent til móts við farþegaskipið að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Björgunarskipið Gísli Jónsson frá Ísafirði var svo sent í veg fyrir varðskipið með lækni og sjúkraflutningamann frá Ísafirði.

Sjúkraflutningamenn varðskipsins fóru svo ásamt lækni um borð í farþegaskipið skömmu fyrir klukkan tvö í nótt og fluttu sjúklinginn um borð í Tý. Komið var með sjúklinginn til Ísafjarðar um rétt fyrir klukkan sex í morgun, þaðan sem hann verður sendur til Reykjavíkur með sjúkraflugi.

Í áhöfn varðskipa Landhelgisgæslunnar eru að jafnaði tveir menntaðir sjúkraflutningamenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert