Leita að týndum hjónum á Kjalvegi

Lágskýjað er á svæðinu og hiti undir tíu gráðum.
Lágskýjað er á svæðinu og hiti undir tíu gráðum. mbl.is/Eggert

Allar björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út vegna tveggja týndra ferðamanna á Kjalvegi. Ferðamennirnir eru hjón og höfðu lagt af stað í göngu frá Gíslaskála um miðjan dag í dag ásamt tveimur öðrum. Þau urðu viðskila við hina tvo en þeir skiluðu sér til baka umfimm leytið í Gíslaskála, að því er fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. 

Segir þar að ferðafélagar hafi fljótlega byrjað að hafa áhyggjur af þeim og síðast náð sambandi við þau um klukkan átta, en þá hafi þau ekki haft hugmynd um hvar þau voru.

Ekki hefur náðst samband við þau síðan þá og klukkan hálf tíu lögðu fyrstu hópar af stað á Kjöl til að hefja grófa leit út frá upplýsingum um ferðir þeirra, samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg. Á svæðinu mun vera lágskýjað og hiti er undir 10 gráðum.

Aðgerðum er stýrt í samstarfi við aðra viðbragðsaðila frá aðgerðastjórnstöðinni á Selfossi.

Uppfært

Hjónin sem leitað var að í kvöld fundust heil á húfi.

Gíslaskáli við Kjalveg.
Gíslaskáli við Kjalveg. mbl.is/Sigurður Bogi
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert