20% fækkun ferðamanna á öðrum ársfjórðungi

Ferðamenn á Keflavíkurflugvelli.
Ferðamenn á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjöldi ferðamanna á landinu í maí var 173 þúsund og dróst fjöldinn saman um 17% frá sama mánuði í fyrra þegar 209 þúsund ferðamenn sóttu landið. Ferðamönnum til landsins hefur fækkað um 20% sé heildarfjöldi ferðamanna sem heimsótti Ísland á öðrum ársfjórðungi borinn saman við sama tímabil í fyrra, frá 488 þúsund 2018 niður í 390 þúsund árið 2019.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýjum skammtímahagvísum ferðaþjónustunnar sem Hagstofan birtir.

10% fækkun gistinátta

Gistinætur í maí voru 690.000 sé litið á allar tegundir gistinótta. Drógust þær saman um 10% borið saman við sama mánuð árið áður þegar þær voru 767 þúsund. Mestur samdráttur var á gistinóttum sem miðlað er gegnum Airbnb og sambærilegar vefsíður eða um 29%. Voru þær 89 þúsund í maí samanborið við 125 þúsund 2018. Gistinætur á hótelum drógust einnig saman, þó einungis um 3%. Á sama tíma lækkaði nýtingarhlutfall hótelherbergja á landinu úr 58% niður í 56% og framboð hótelherbergja jókst um 13%, úr 9.200 herbergjum í 10.500 herbergi.

Yfir þriggja mánaða tímabil, mars til maí, hefur heildarfjöldi gistinótta á hótelum dregist saman um 3% borið saman við sama tímabil í fyrra á meðan gistinætur keyptar í gegnum vefsíður á borð við Airbnb hafa dregist saman um 14%.

Brottförum farþega frá Keflavíkurflugvelli fækkaði á sama þriggja mánaða tímabili um 12% og erlendum ferðamönnum fækkaði um tæplega 15%. Samkvæmt tölum ISAVIA fækkaði skiptifarþegum um 43% á sama tímabili.

Á 2. ársfjórðungi hefur skiptifarþegum fækkað um 48% frá fyrra ári, frá tæplega 560 þúsund skiptifarþegum árið 2018 niður í 290 þúsund árið 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert